Langar beint niður í Kríu að setja nagladekk undir hjólið þegar ég sé þessa mynd. Brilliant að vera á háum hælum á eins gíra hjóli í snjókomu og auk þess skælbrosandi.
Palli sem er formaður skipulagsráðs er búin að vera að hjóla um á nöglum í vetur og segir að það sé ekkert mál, spurning um að ganga bara í málið. Veit samt ekki alveg hvort ég þori í þessa skó, er búin að detta þrisvar í vetur og samt í alveg ágætum kuldaskóm.
(Source: highheelsandtwowheels)